Stundum langar mig að baka eitthvað svakalega einfalt, eitthvað sem tekur ekki langan tíma en smakkast dásamlega. Þessir kökubitar eru einmitt þannig: hráefnin eru einföld, aðferðin er einföld en niðurstaðan er meira en ásættanleg – reyndar bara alveg geggjuð!
Þessa dásemd er t.d. auðvelt að baka fyrir vinnu og láta hana svo bíða á borðinu eftir manni þegar maður kemur heim. Hún er frábær með kaffinu, sniðug að taka með á bekkjarkvöld, flott í saumaklúbbinn eða í morgunkaffið í vinnunni.
Botninn er líkastur stökku vanillukexi. Svo hellir maður súkkulaði yfir hann og lætur það bráðna, kastar svo nokkrum hnetum yfir súkkulaðið og voila!
Stökkir vanillubitar með súkkulaði og hnetum:
- 230 gr mjúkt smjör
- 150 gr ljós púðursykur
- 1 eggjarauða
- 350 gr hveiti
- 1 tsk vanilludropar
- 300gr súkkulaðidropar
- 50-100 gr af hnetum (t.d. Pekan, Valhnetu eða Pistasíu)
Aðferð:
- Hitið ofninn í 180°C og smyrjið eldfast mót með smjöri. Formið sem ég nota er 28 x 28 cm.
- Þeytið smjörið og púðursykurinn þar til blandan er orðin létt og ljós, í ca. 4 mínútur.
- Bætið eggjarauðunni út í og blandið áfram vel.
- Blandið nú hveitinu og vanillunni saman við.
- Hellið deiginu í formið og dreyfið úr því svo það verði allt jafn þykkt.
- Bakið í 30 mínutur eða þar til toppurinn á kökunni er orðinn gylltur.
- Takið þá kökuna úr ofninum og dreyfið súkkulaðidropunum yfir kökuna.
- Setjið kökuna aftur inn í ofn í ca 3 mínútur svo súkkulaðið nái að bráðna.
- Eftir þrjár mínútur er kakan tekin úr ofninum og formið sett á kæligrind.
- Þá er að dreyfa úr súkkulaðinu með spaða eða skeið og strá hnetunum yfir súkkulaðið.
- Kakan er látin kólna alveg áður en hún er skorin í bita.
Njótið vel!