Þessar súkkulaðibitakökur eru svakalegar! Það segir svolítið um það hversu góðar þær eru að ég hef aldrei náð að frysta þær – þær klárast alltaf áður en til þess kemur.
Þetta eru ekki hefðbundnar smákökur eins og þið sjáið á myndunum heldur lófastórar súkkulaðibitakökur sem smakkast æðislega einar og sér en fullkomnast með bolla af góðu heitu súkkulaði með miklum rjóma (oink oink)
Hérna kemur uppskriftin:
- 230 gr mjúkt smjör (við stofuhita, ekki bráðið)
- 180 gr púðursykur
- 160 gr sykur
- 2 egg
- 1 tsk vanilludropar
- 320 gr hveiti
- 1 tsk matarsódi
- 200 gr súkkulaði (dropar eða saxað súkkulaði)
Aðferð:
- Hitið ofninn í 180°C.
- Hafið til bökunarplötur og smjörpappír eða sílikonmottur.
- Setjið smjörið og sykurinn (líka púðursykurinn) í hrærivélaskál og blandið vel eða þar til blandan er orðin ljós og létt.
- Bætið eggjunum og vanilludropunum út í og blandið áfram.
- Stoppið hrærivélina og skafið vel innan úr skálinni með sleikju, blandið áfram í eina mínútu.
- Blandið þurrefnunum út í og blandið áfram vel saman.
- Hellið súkkulaðidropunum út í deigið og blandið aðeins áfram.
- Búið til litlar kúlur úr deginu með ísskeið eða teskeiðum. Ég fékk mína ísskeið í Kosti um daginn á ca. 1.200kr. Sú ísskeið er 4 cm í þvermál. Snilldin við að nota ísskeið er að kökurnar verða allar jafn stórar.
- Kökurnar leka svolítið út svo það er mikilvægt að hafa gott bil á milli þeirra á bökunarplötunni.
- Bakið í miðjum ofninum í 12-15 mínútur eða þar til kökurnar fá á sig gylltan lit. Passið að baka þær ekki of lengi því þá verða þær svo stökkar.
Njótið vel!