Þessa dagana er ég að skipuleggja 13 ára afmæli eldir stelpunnar minnar. Ég hef m.a. verið að prófa mig áfram með að lita hvítt súkkulaði og gera fallega súkkulaðimola. Þessir molar eru æði því súkkulaðið má lita í hvaða lit sem er, t.d. ombre bleikum í babyshower fyrir stelpu, rauðum, grænum og hvítum um jólin eða gulum og myntugrænum fyrir páskana.
Eins og gefur að skilja þá þarf súkkulaðið að vera hvítt ef við ætlum að lita það og við verðum að velja gott hvítt súkkulaði því þetta eru jú konfektmolar sem við erum að gera 🙂 Í Hagkaup er hægt að fá mjög gott súkkulaði frá Barry Callebaut í 240gr pokum (súkkulaðidropar). Svo fæst líka dásamlegt hvítt súkkulaði frá Green & Black’s bæði í Hagkaup og Bónus. Continue reading